Hálfur lambahryggur í ofni

Innihald:

      – Hálfur lambahryggur
      – Ólífuolía
      – Blanda fyrir lamb frá Mabrúka
      – Salt

Aðferð:

      – Ef þið hafið tíma, byrjið helst daginn áður eða um morguninn til að leyfa kjötinu að bíða í kryddinu
      – Skolið og þerrið hrygginn
      – Berið olíu á hann
      – Stráið salti á allar hliðar
      – Nuddið með blöndu fyrir lamb (u.þ.b. 2 msk.)
      – Látið bíða inni í ísskáp
      – Setjið í fat og inn í ofn á 150°C án blásturs í ca. 40 mínútur, hækkið síðan hitann í 220°C og setjið á blástur og haldið áfram í ca. 40 mínútur eða þar til kjarnhitinn á hryggnum er kominn upp í 75°C

Leave a Comment

Your email address will not be published.