Innihald:
- – Hálfur lambahryggur
- – Ólífuolía
- – Blanda fyrir lamb frá Mabrúka
- – Salt
Aðferð:
- – Ef þið hafið tíma, byrjið helst daginn áður eða um morguninn til að leyfa kjötinu að bíða í kryddinu
- – Skolið og þerrið hrygginn
- – Berið olíu á hann
- – Stráið salti á allar hliðar
- – Nuddið með blöndu fyrir lamb (u.þ.b. 2 msk.)
- – Látið bíða inni í ísskáp
- – Setjið í fat og inn í ofn á 150°C án blásturs í ca. 40 mínútur, hækkið síðan hitann í 220°C og setjið á blástur og haldið áfram í ca. 40 mínútur eða þar til kjarnhitinn á hryggnum er kominn upp í 75°C