Description:

Kúmenið okkar er frá Norður-Túnis, hrein gæðavara frá Miðjarðarhafinu. Kúmenið er sérlega ferskt og malað rétt áður en það er sett í blöndur og pakkað til þess að það hafi sterka og góða lykt og bragð. Mamma velur það sjálf til þess að passa upp á gæðin. Allt ferlið er gert í höndunum þar til við pökkum kúmeninu. Notkunarmöguleikar kúmens: Kjöt (lamb, naut) og heimabakað brauð.